Heilsudvöl í Hveragerði

Forvarnir og heilsuefling er nauðsynleg fyrir andlega og líkamlega vellíðan. Í starfi Heilsustofnunar er lögð áhersla á að gestir nái sem bestri líðan bæði á líkama og sál. Heilsudvöl er í boði fyrir alla sem vilja bera ábyrgð á eigin heilsu.

Má bjóða þér í heilsudvöl?

Læknisfræðileg endurhæfing

Sérhæfð læknisfræðileg endurhæfing sem byggir á því að meðhöndla sjúkdóma og slys heildrænt. Hér fara saman félagslegar, læknisfræðilegar og sálfræðilegar úrlausnir sem miða að því að ná sem mestri mögulegri færni og lífsgæðum.

Skoða nánar

Eydís Mary Jónsdóttir, land- og umhverfisfræðingur mun leiðbeina í ferðinni og, kenna áhugasömum að þekkja, tína og verka söl og annað fjörmeti. Hinrik Carl Ellertsson matreiðslumaður, landsliðskokkur og lífskúnstner mun einnig fræða okkur um hvernig er hægt að nýta sjávarþang og fleira.
Þátttakendur þurfa að klæða sig eftir veðri, vera í vatnsheldum skóm, helst stígvélum, og hafa með sér poka til að safna í, til dæmis strigapoka. Gott að taka vatnsbrúsa með. Súpa og brauð í boði Heilsustofnunar í Hveragerði.

Takmarkaður fjöldi kemst í þessa ferð, fólk verður að skrá sig en það má gera með tvennum hætti:

  • - Senda tölvupóst á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. með nafni, kennitölu og símanúmeri
  • - eða hringja í formann félagsins í síma 8606525 (Ingi Þór)

Mæting við styttuna af Geirfuglinum við Valahnjúk á Reykjanesi kl. 10:45, þriðjudaginn 11. september.

Frítt fyrir félagsmenn.

 

saman solvatinsal

Hvernig ber ég mig að?

  • Læknisfræðileg endurhæfing

    Öll íhlutun sem miðar að því að draga úr skerðingu, fötlun og örorku af völdum sjúkdóma og slysa fellur undir læknisfræðilega endurhæfingu.

    Skoða nánar

  • Almenn heilsudvöl

    Á Heilsustofnun geta gestir komið á eigin vegum í sannkallaða heilsudvöl.

    Skoða nánar

  • Námskeið og fræðsla

    Á Heilsustofnun eru fjölmörg námskeið í boði fyrir gesti og almenning er varða endurhæfingu, heilbrigt líferni og aukin lífsgæði.

    Skoða nánar