Heilsudvöl í Hveragerði

Forvarnir og heilsuefling er nauðsynleg fyrir andlega og líkamlega vellíðan. Í starfi Heilsustofnunar er lögð áhersla á að gestir nái sem bestri líðan bæði á líkama og sál. Heilsudvöl er í boði fyrir alla sem vilja bera ábyrgð á eigin heilsu.

Má bjóða þér í heilsudvöl?

Læknisfræðileg endurhæfing

Sérhæfð læknisfræðileg endurhæfing sem byggir á því að meðhöndla sjúkdóma og slys heildrænt. Hér fara saman félagslegar, læknisfræðilegar og sálfræðilegar úrlausnir sem miða að því að ná sem mestri mögulegri færni og lífsgæðum.

Skoða nánar

Árangursmælingar

Mat á meðferð
Allir árangursmælikvarðar Heilsustofnunnar þjóna því markmiði að niðurstöður megi nota til þess að bæta meðferð þeirra sem til Heilsustofnunar leita. Þar að auki eru árangursmælikvarðar mikilvægur þáttur innan þjónustusamnings sem Heilsustofnun gerir við Sjúkratryggingar Íslands.

Árangursmælikvarðar eru m.a. 

  • Heilsutengd lífsgæði
  • Verkjamat
  • Athafnir daglegs lífs
  • Minnispróf
  • Göngupróf
  • Þrekpróf
  • Liðmælingar 
  • Ummálsmælingar
  • Blóðþrýstingsmælingar
  • Fótaóeirðarmælingar
  • Þunglyndis-, kvíða- og streitumat
  • Byltu- og jafnvægismat

Hvernig ber ég mig að?

  • Læknisfræðileg endurhæfing

    Öll íhlutun sem miðar að því að draga úr skerðingu, fötlun og örorku af völdum sjúkdóma og slysa fellur undir læknisfræðilega endurhæfingu.

    Skoða nánar

  • Almenn heilsudvöl

    Á Heilsustofnun geta gestir komið á eigin vegum í sannkallaða heilsudvöl.

    Skoða nánar

  • Námskeið og fræðsla

    Á Heilsustofnun eru fjölmörg námskeið í boði fyrir gesti og almenning er varða endurhæfingu, heilbrigt líferni og aukin lífsgæði.

    Skoða nánar