Heilsudvöl í Hveragerði

Forvarnir og heilsuefling er nauðsynleg fyrir andlega og líkamlega vellíðan. Í starfi Heilsustofnunar er lögð áhersla á að gestir nái sem bestri líðan bæði á líkama og sál. Heilsudvöl er í boði fyrir alla sem vilja bera ábyrgð á eigin heilsu.

Má bjóða þér í heilsudvöl?

Læknisfræðileg endurhæfing

Sérhæfð læknisfræðileg endurhæfing sem byggir á því að meðhöndla sjúkdóma og slys heildrænt. Hér fara saman félagslegar, læknisfræðilegar og sálfræðilegar úrlausnir sem miða að því að ná sem mestri mögulegri færni og lífsgæðum.

Skoða nánar

Laust starf í ræstingu

Starfið er laust frá 1. ágúst 2026, 100% starf

Vinnutími frá 08:00-15:00 og unnið aðra hvora helgi

Laun skv. kjara-og stofnanasamningi við Eflingu

Viðkomandi þarf að vera stundvís og áreiðanlegur, með góða hæfni í mannlegum samskiptum og tala góða íslensku

Umsóknir berist til Aldísar Eyjólfsdóttur mannauðsstjóra í netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. og einnig er hægt að hafa samband í síma 4830300

 

 

Almennar starfsumsóknir

Almennar starfsumsóknir skal senda til Aldísar Eyjólfsdóttur starfsmannastjóra í netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. og einnig er hægt að hafa samband í síma 4830300

Einnig er tekið við umsóknum í bréfleiðis. 

Utanáskrift umsókna er:

Heilsustofnun NLFÍ
b.t. starfsmannastjóra
Grænumörk 10
810 Hveragerði

Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.

Nánari upplýsingar veitir starfsmannastjóri, This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.


Heilsustofnun er ein stærsta endurhæfingarstofnun landsins og veitir árlega 1350 einstaklingum endurhæfingarþjónustu skv. samningi við Sjúkratryggingar Íslands.

Á Heilsustofnun fer fram einstaklingsmiðuð læknisfræðileg endurhæfing sem stjórnað er af þverfaglegum teymum. Áhersla er á að efla líkamlega, andlega og félagslega færni einstaklinga, auka lífsgæði og styrkja þá til athafna daglegs lífs.

Helstu meðferðarsvið eru verkjameðferð, meðferð vegna streitu og kulnunar, offitumeðferð, geðendurhæfing, hjartaendurhæfing, öldrunarendurhæfing og endurhæfing eftir alvarleg veikindi, aðgerðir eða slys.

 

Hvernig ber ég mig að?

  • Læknisfræðileg endurhæfing

    Öll íhlutun sem miðar að því að draga úr skerðingu, fötlun og örorku af völdum sjúkdóma og slysa fellur undir læknisfræðilega endurhæfingu.

    Skoða nánar

  • Almenn heilsudvöl

    Á Heilsustofnun geta gestir komið á eigin vegum í sannkallaða heilsudvöl.

    Skoða nánar

  • Námskeið og fræðsla

    Á Heilsustofnun eru fjölmörg námskeið í boði fyrir gesti og almenning er varða endurhæfingu, heilbrigt líferni og aukin lífsgæði.

    Skoða nánar