Tómas Guðbjartsson opnaði á dögunum glæsilega ljósmyndasýningu á Heilsustofnun og færði stofnuninni þær að gjöf um leið með þakklæti fyrir frábæra dvöl en hann þurfti sjálfur að nýta sér þjónustu Heilsustofnunar fyrr á árinu.
Ég hef lengi látið mig dreyma um að halda sýningu með ljósmyndum frá Ketildölum við sunnanverðan Arnarfjörð.
Markmið mitt er fyrst og fremst að kynna ótrúlega náttúrufegurð
þessa fáfarna svæðis, en um leið er það von mín að komandi kynslóðir fái að njóta þessa
fjársjóðar sem lítt snortnir Ketildalir eru“


Myndirnar eru til sýnis í Kringlunni á Heilsustofnun og eru allir velkomnir að líta við og sjá sýninguna
Ljósmyndir úr opnunarathöfn: Guðmundur Kristinn Jóhannesson




