Núvitund - 8 vikur - 19.febrúar 2020

Næsta námskeið hefst 19. febrúar 2020 

Þetta námskeið er ekki fyrir inniliggjandi dvalargesti.

Námskeið í núvitund við verkjum, kvíða, þunglyndi og streitu. Námskeiðið tengir saman núvitund og hugræna atferlismeðferð.

Unnið er í lokuðum hópum 12-16 einstaklinga. Kennt er í átta skipti, einu sinni í viku í tvo tíma í senn. Þátttakendur þurfa að gera ráð fyrir daglegum heimaæfingum á milli tímanna.

Kennt er á miðvikudögum kl. 15:30 - 17:30.  - Þögull laugardagur verður 21. mars

Núvitund er þýðing á enska orðinu mindfulness og er einfaldlega það að vita hvað er að gerast á meðan það er að gerast. Að einsetja sér  að beina athyglinni að núverandi augnabliki, hlutlaust og taka því eins og það er.

Æ fleiri rannsóknir hafa birst á allra síðustu árum sem hafa sýnt fram á að núvitund nýtist afar vel fólki sem er að berjast við verki, háþrýsting, svefnerfiðleika, hjarta- og æðasjúkdóma og krabbamein. Núvitund nýtist einnig við sálfræðilegum vandamálum, s.s. endurteknu þunglyndi, streitu, kulnun, kvíða og ofsakvíða.

Hvað lærist?

  • Að þekkja hvernig hugurinn vinnur
  • Að taka eftir þeim stundum sem okkur hættir til að festast í gömlum vana hugans og sogast aftur ofan í gamalkunnuga vanlíðan
  • Kynnumst leiðum til að losa okkur frá lítið gagnlegum vana og lærum að beita okkur á annan máta, þ.e.a.s. ef það er það sem við viljum
  • Að sjá fegurðina í hinu smáa í heiminum í kringum okkur í stað þess að festast í höfðinu á okkur sjálfum
  • Að sýna sjálfum okkur mannúð, í stað þess að óska sífellt eftir því að heimurinn væri öðruvísi, eða keyra okkur áfram við að reyna að ná vonlausum markmiðum
  • Leið til þess að vera ekki endalausri í baráttu við okkur sjálf
  • Að sættast við okkur eins og við erum, í stað þess að vera endalaust að dæma okkur

Kennari er Bridget "Bee" McEvoy, RPN, en hún hefur kennt núvitund á Heilsustofnun frá árinu 2006

Verð og hvað er innifalið;

Námskeiðið kostar 69.000 kr.

Öll námskeiðsgögn eru innifalin, þ.m.t. hugleiðsluæfingar

Aðgangur að sundlaugum og baðhúsinu Kjarnalundi á námskeiðstímanum

Matarklúbbskort sem veitir 30% afslátt af hádegis- og kvöldverði á Heilsustofnun

Nánari upplýsingar á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. eða í síma 4830300

stofnunarins2023   fyrirmyndarstofnun2023

Vilt þú gerast hollvinur Heilsustofnunar?